Björgunarfélag Akranes ætlar að halda svokallaða Bátamessu laugardaginn 19.maí.
Mæting er á Akranes kl.11 og byrja á smá morgunkaffi svo verður lagt af stað kl.12 í siglingu. Siglt verður meðal annars inn Borgarfjörð að Borgarfjaðarbrú. Áætlaður komutími til Akraness milli kl. 17-18 og gestum boðið í grill. Ætlunin er að fá 6-8 fyrirtæki að vera með kynningu á sjóvörum.
Skráning er á heimasíðu félagsins http://landsbjorg.is/eventsCat.aspx?catID=55&EventId=736 og lýkur skráningu á hádegi miðvikudaginn 16. maí.
Til baka