Áttun á vef: Skip Navigation LinksBrák > FRÉTTIR > Fréttir
S
M
Þ
M
F
F
L
29
30
31
1
2
3
4

5
6
7
8
9
10
11

12
13
14
15
16
17
18

19
20
21
22
23
24
25

26
27
28
29
30
1
2

3
4
5
6
7
8
9

Fyrri mánuður
september 2010
Næsti mánuður

Framundan

Heilræði

Boðunarkerfi 

Skilgreiningar á forgangsskiptingu

 

F-1 Rauður

Forgangur 1 Rauður, er aðgerð sem skv. hjálpargögnum neyðarvarða er metin í efsta forgang og sem lífsógn. Sjúkrabíll og/eða annað björgunarlið er sent í forgangsakstri. T.d. þar sem allt tiltækt björgunarlið væri með aðkomu, stóreldur, fjöldaslys eða einstaklingsslys með alvarlegum áverkum.

 

F-2 Gulur

Forgangur 2 Gulur er aðgerð sem skv. hjálpargögnum neyðarvarða er metin í næst efsta forgang. Sjúkrabíll og /eða annað björgunarlið er sent í forgangsakstri en aðeins í atburði án lífsógnar.

 

F-3 Grænn

Forgangur 3 er aðgerð sem skv. hjálpargögnum neyðarvarða er metin til afgreiðslu strax en án forgangs. Aðeins viðeigandi hluta björgunarliðs er kallaður, staðbundin aðgerð sem krefst hvorki forgangs eða fjölda manns.

9. júní 2009 21:03

Sjómannadagshelgin 2009!

Þá er einni af annasömustu helgum björgunarsveita Borgarfjarðar lokið, en það er sjómannadagshelgin. 

Í fyrra 2008 kviknaði sú hugmynd hjá björgunnarfólki í Borgarnesi að halda upp á sjómannadaginn þar sem Borgarnes var nú eitt sinn mikill útgerðarbær.

 

 
 
 
 
 
Verið að samræma sig við Skorradalsvatn 2009

 

Ráðist var í að skipuleggja og á um 7 dögum sköpuðu sveitirnar, líkt og Guð, algert ævintýri. Það sem finna mátti meðal annars á bryggjunni í Borgarnesi var snjóbíll, fluglínutæki, koddaslagur og svo var boðið upp á siglingu og grillaðar pylsur. Punkturinn yfir i-ið var svo þegar þyrla landhelgisgæslunnar kom og hífið tvo menn upp úr sjónum og flaug með þá yfir fagnandi mannfjöldann.

 

Nú var hins vegar ákveðið að gera enn betur. Sjómannadagurinn var lengdur upp í heila helgi og á dagskránni mátti finna eitthvað fyrir alla.

 

 

 Á föstudeginum var boðið upp á sýningarferðir um tvær af náttúruperlum Borgarfjarðar. Það var jeppaferð upp á Langjökul og gönguferð í gegn um Surtshelli en enduðu báðar ferðirnar með funheitri gúllassúpu.

 

Daginn eftir var arkað af stað í gönguferðir árla morguns. Ein ferð var upp á Hafnarfjallið, önnur milli Stóruskóga og Jafnaskarðsskógs og sú þriðja var söguhringurinn í Borgarnesi. Einnig var ratleikur í Jafnaskarðsskógi fyrir alla fjölskylduna og fjölmenntu sveitungar þangað og leystu hin ýmissu verkefni.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Frá ratleiknum

 

Um kvöldið var svo slegið upp sveitaballi af borgfirskum sið og gekk það framar vonum. Talna- og fjárglöggir menn segja að þar hafi rúmlega 300 manns safnast saman til að dansa sér til heilsubótar.  

 

 

Björgunnarfólk reif sig svo upp eld snemma á sunnudeginum til að stilla upp fyrir Sjómannadaginn sjálfann. Þar sem miklar framkvæmdir eru við höfnina í Borgarnesi var ákveðið að færa hátíðina upp að Skorradalsvatni. Eitthvað um 600 manns lögðu leið sína þangað. Þar var fjölbreytt skemmtun og eitthvað fyrir alla. Hestaflokkur Brákar var með nokkra meðlimi til sýnis, grillaðar voru pylsur, þyrlan kom og hífði tvo upp til sín, bátsferðir um vatnið í boði og  kynnt var nýtt björgunnartæki Oks sem er sjóþota. Eitt bar þó af og var það traktorsfleyting um vatnið. Var það Guðmundur Hallgrímsson, þekktur sem Guðmundur Hall, sem setti Monsterið á flot en það er traktor byggður úr rörum. Komst hann á flot og ekki var þörf á að kalla út björgunnarsveitir til að bjarga honum í þetta skiptið.

 

Helgin var skemmtileg og strembin fyrir björgunnarfólk í Borgarfirði en það var vel þess virði.

Vilja sveitirnar að lokum koma þökkum til bæjarbúa og nærsveitunga fyrir stuðninginn í gegn um árin.

 

Fh. Brákar, Heiðars og Oks.

Þorgerður Bjarnadóttir

 


Til baka