Áttun á vef: Skip Navigation LinksBrák > FRÉTTIR
S
M
Þ
M
F
F
L
27
28
29
30
1
2
3

4
5
6
7
8
9
10

11
12
13
14
15
16
17

18
19
20
21
22
23
24

25
26
27
28
29
30
31

1
2
3
4
5
6
7

Fyrri mánuður
júlí 2010
Næsti mánuður

Framundan

Heilræði

Skyndihjálp 

Blástursaðferðin

 

Ef sjúklingur andar ekki þarf að byrja á því að tryggja að öndunarvegur sé ekki stíflaður (kanna hvort aðskotahlutur eða tunga hindri loftstreymi til lungna) og fjarlægja stíflu ef svo er og einnig þarf maður að vera viss um að æðasláttur sé til staðar, ef enginn æðasláttur finnst verður að beita hjartahnoði.

 

Ef slasaður andar ekki þá:

  1. Opna öndunarveg
  2. Dragið að ykkur hreint loft
  3. Lokið nefi sjúklings og blásið ákveðið inn um munn hans. Lokið munni hans ef blásið er í nef.
  4. Sjáið brjóstkassann lyftast, það sýnir að loft hefur komist í lungun.
  5. Lyftu höfði þínu frá andliti sjúklingsins og horfðu á brjóstkassann hníga á meðan þú dregur að þér loft.
  6. Endurtaktu þetta 12-15 sinnum á mínútu.  Mundu að draga að þér hreint loft á milli blástra
  7. Ef hinn slasaði er kornabarn, blástu þá varlega, munnfylli lofts er nóg til að fylla lungu barns. Hjá kornabörnum er blásið um munn og nef í einu.
7. apríl 2009 17:56

Aðalfundur Brákar 2009

Fundargerð aðalfundar Björgunarsveitarinar Brákar, 1. apríl 2009.

 

 

Borgarnesi 1. apríl 2009

 

Aðalfundur Brákar

Fundargerð

 

                                                           

-  Fráfarandi formaður setur fund.

- Snædís L. Bjarnadóttir skipuð sem fundarstjóri, engar athugasemdir.

-  Þorgerður sett sem fundarritari, engar athugasemdir.

-  Ritari las upp fundargerð síðasta aðalfundar og skýrslu stjórnar.

-  Stuttar umræður um skýrslu stjórnar, var hún síðan samþykkt einróma.

-  Formaður kosin, þar sem enginn bauð sig fram voru allir í kjöri, í fyrstu umferð fóru atkvæði svo: Pétur 8, Guðrún 1, Kristján Jóhannes 2, Halla 3, Erlendur 8 og Jakob 1, auðir og ógildir seðlar voru 2. Þar sem jafntefli kom upp á milli Erlendar og Péturs var kosið aftur á milli þeirra og fóru atkvæði svo: Pétur 12 og Erlendur 12, auðir og ógildir seðlar voru 1. Eftir stutta umræðu ákvað Erlendur, þó svo að hafa dregið sig í hlé, að taka ábyrgðina og var klappað fyrir því. Telst því Erlendur Breiðfjörð Magnússon kjörin formaður Brákar í 4 sinn.

-  Þar sem Erlendur var kosin formaður aftur skoraði hann á Guðrúnu, sem ætlaði líka að draga sig í hlé, að bjóða sig aftur fram sem gjaldkera og tók hún því. Fundargestir klöppuðu fyrir því.

-  Kosið í stjórn, aðeins einn nýr bauð sig fram í stjórn og telst því sjálfkjörin, það er Halla Kjartansdóttir. Auk hennar eru það Þorgerður Bjarnadóttir, Pétur Guðmunsson og Guðrún Kristjánsdóttir sem manna stjórnina.

-  Gjaldkeri setti fram reikninga. Engar athugasemdir og þeir því samþykktir einróma.

-  Gunna Kristjáns eldri, Jakob og Sæmundur Sigmundsson boðin velkomin á fundin.

- Opnað fyrir önnur mál.

-  Fundur stjórna á sv. 4 ræddur, það er skýrsla formanns um þau mál.

-  Halla kynnti starf unglingadeilarinnar í vetur og sagði frá því að hún hafi stofnað heimasíðu og væri komin með nafn, Litla-Brák.

-  Ásgeir hélt stutta tölu og lét gjaldkeran fá reikning upp á tæpar 5 milljónir fyrir tveimur sexhjólum sem stjórn Brákar keypti í stjórnarheimsókn sinni til Reykjavíkur.

-  Ásgeiri var afhendur blómvöndur fyrir góð störf í Brák, einnig fengu Guðrún og Erlendur blómvendi þar sem allt benti til þess að þau myndu hætta líka á þessum fundi.

-  Erlendur las upp hugvekju til félaga Brákar.

-  Nefnd til skipulags nýliðamála er skipuð Jakobi, Bjarna, Birni Óskari og Kidda Jóa.

-         Fundi slitið.

-         Boðið var upp á kaffiveitingar í lok fundar og gerðu gestir því góð skil.

                                          

(Sexhjólakaup Brákar voru aðeins 1. apríl gabb til gjaldkerans, ekki hefur sveitin fest kaup á slík tæki, enn allavega.)

 

                                  

 Þorgerður Erla Bjarnadóttir, fundarritari.

 


Til baka