Áttun á vef: Skip Navigation LinksBrák > FRÉTTIR
S
M
Þ
M
F
F
L
27
28
29
30
1
2
3

4
5
6
7
8
9
10

11
12
13
14
15
16
17

18
19
20
21
22
23
24

25
26
27
28
29
30
31

1
2
3
4
5
6
7

Fyrri mánuður
júlí 2010
Næsti mánuður

Framundan

Heilræði

Boðunarkerfi 

Skilgreiningar á forgangsskiptingu

 

F-1 Rauður

Forgangur 1 Rauður, er aðgerð sem skv. hjálpargögnum neyðarvarða er metin í efsta forgang og sem lífsógn. Sjúkrabíll og/eða annað björgunarlið er sent í forgangsakstri. T.d. þar sem allt tiltækt björgunarlið væri með aðkomu, stóreldur, fjöldaslys eða einstaklingsslys með alvarlegum áverkum.

 

F-2 Gulur

Forgangur 2 Gulur er aðgerð sem skv. hjálpargögnum neyðarvarða er metin í næst efsta forgang. Sjúkrabíll og /eða annað björgunarlið er sent í forgangsakstri en aðeins í atburði án lífsógnar.

 

F-3 Grænn

Forgangur 3 er aðgerð sem skv. hjálpargögnum neyðarvarða er metin til afgreiðslu strax en án forgangs. Aðeins viðeigandi hluta björgunarliðs er kallaður, staðbundin aðgerð sem krefst hvorki forgangs eða fjölda manns.

5. maí 2009 17:28

Afbragðs Apríl!

Já nú er sko að koma sumar, apríl mánuður búin og mai mánuður tekin við.

 

 

 

 

 

Nóg var að gera hjá björgunarsveitini þennan mánuðin eins og undanfarna en hér verður farið stuttlega yfir það.

 

Byrjuðum við mánuðinn vel með aðalfundi þar sem stjórnin hélt, að mestuleiti allavega, Ásgeir datt út en Halla kom inn. Þegar sá slagur var búin gæddu gestir sér á Hnallþórum að hætti gjaldkerans, þó var útgjaldaliðurinn ekki hár miðað við stærðina á bakkelsinu.

 

Aðeins eitt útkall barst en það var verðmætabjörgun undir Hafnarfjalli þar sem flutningabíll fullur af makríl og smokkfiski valt og vantaði þar aðstoð við "löndun" úr bílnum. tók það vaska björgunarsveitamenn ekki nema rétt um 5 klst að hirða upp rúmlega 900 kassa af fiski.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 
 
Fiski-fjör!

 

Því til eftirfylgni fór unglingadeildin Litla-Brák í göngutúr með umsjónamönnum sínum. Réttara sagt tóku þau annan umsjónamanninn, hana Höllu, á milli sín í börur og skokkuðu með hana sem leið lá niður á Hyrnu þar sem þau fengu ís. Án efa duglegur hópur þar á ferð!

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Galvaskir unglingar með Höllu 

 

Farið var í eitt stykki fjölskylduferð þann 25. apríl og var staðurinn Lambastaðafjara. Þar var farið í krikket, grillaðar pylsur, byggðir sandkastalar og fundin upp ný íþrótt svo eitthvað sé nefnt. Voru allir sáttir við heimkomu þó eftir væri að kjósa.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Verðandi og núverandi björgunarsveitamenn

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 
Lambastaðamótaröðin 2009

 

Að lokum er rétt að minnast á að tveir galvaskir meðlimir Brákar fóru í nettan labbitúr á gönguskíðum þar sem þeir skoðuðu leiðina upp á Skessuhorn, þessi skottúr varði í rúma 7 klukkutíma en komust þeir heim að lokum eldsprækir að vanda.

 

 

 

 

 

 

 
 

 

 

Þessi rataði upp...

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

En þessi niður

Þannig hljóðar nú apríl mánuður hjá Brák, vona að maí verði jafn góður ef ekki betri.

 

Þorgerður Bjarnadóttir

 


Til baka