Hópeflisnefnd Bjsv. Brákar er tekin til starfa af fullum krafti. Fundir nefndar verða með óreglulegu sniði og tilviljanakenndir eftir því.
Viðburðir á vegum nefndarinnar eru ætlaðir til skemmtunar og gleði auk þess að verðlauna oft erfitt starf félagsmanna og fjölskyldna þeirra.
Fyrsti viðburður nefndarinnarverður haldinn sunnudaginn 15.nóvember kl.11:00 í Reykjavík. Þá stefnum við á að fara í sjóstangveiði með Magnúsi Daníelssyni skipstjóra með meiru sem gerir út bátinn Faxa (sjá myndir). Einnig á að grilla um borð. Báturinn tekur 30 manns og eru félagsmenn Bjsv. Brákar og fjölskyldur þeirra velkomnar með. Miðaverð er ekki alveg á hreinu en ef þátttaka verður góð mun það ekki fara hærra en 2500.- á mann, minna fyrir börn. Við verðum eiginlega að meta það þegar heildarfjöldi er ljós og hve mörg börn koma með. Brottför er kl.9:30 frá Pétursborg.
Eftir sjóferðina mun Borgþór Hjörvarsson formaður Bjsv. Ársæls fara með okkur í skoðunarferð um bækistöðvar björgunarskips Reykjavíkur og Bjsv. Ársæls sem eru ekki ýkja langt frá höfninni.
Pantanir í sjóstöng og skoðunarferð skulu berast til Höllu í síma 6990717 fyrir kl.20:00 nk. fimmtudagskvöld. ATH. Takmarkaður sætafjöldi er í sjóstöngina, fyrstur kemur, fyrstur fær!
Það er líka möguleiki á því að veður eigi eftir að breytast og sjóstöng verði illmöguleg og mun hópeflisnefnd bregðast við því með plani B
Til baka