Áttun á vef: Skip Navigation LinksBrák > FRÉTTIR
S
M
Þ
M
F
F
L
27
28
29
30
1
2
3

4
5
6
7
8
9
10

11
12
13
14
15
16
17

18
19
20
21
22
23
24

25
26
27
28
29
30
31

1
2
3
4
5
6
7

Fyrri mánuður
júlí 2010
Næsti mánuður

Framundan

Heilræði

Skyndihjálp 

Að hindra lost

 

Losthætta er alltaf til staðar í slysum sérstaklega ef um stóra áverka er að ræða eins og miklar blæðingar, lemstranir, brjóstholsáverka, kviðarholsáverka, innvortis blæðingar og stór brunasár.

 

Til að draga úr losthættu:

  1. Leggið slasaðan með höfuð lægra en fætur til að auka blóðstreymi til hjartans.
  2. Farið varlega með sjúkling og veitið fyrstu hjálp.  Óvarkárni í meðferð eykur losthættu.
  3. Gefið ekki að drekka en væta má varir ef sjúklingur kvartar undan þorsta.
  4. Talið rólega við hinn slasaða og segið honum að hjálp sé á leiðinni.
  5. Verjið gegn kulda.
  6. Fylgist vel með púls og öndun

 

 

 

15. nóvember 2009 22:17

Hópeflisferð númer #1

 

Hr. Jóhann Breiðfjörð
Fyrsta hópeflisferð Brákar var farin til Reykjavíkur sunnudaginn 15.nóv. Meðlimum Bjsv. Oks og Bjsv. Heiðars ásamt fjölskyldum og velunnurum úr Bjsv.Kili var boðið með í ferðina. Sökum veðurs þurfti að fresta áður áætlaðri sjóstangaferð til vors. Í staðinn var farið í keilu í Keiluhöllinni, út að borða á Pítunni og farið í skoðunarferð um bækistöðvar Björgunarsveitarinnar Ársæls sem eru þrjár talsins.

 

Spennan í hámarki í Keiluhöllinni
Alls mættu 14 fullorðnir og 3 börn í keilu þar sem liðunum var skipt eftir sveitum. Reyndar voru heldur fámenn lið frá öðrum sveitum en Bjsv.Brák, svo við að sjálfsögðu lögðum þeim lið. Það að vísu olli því að Brákarliðið varð fámennast en jafnframt barnfæst. Sameinað lið Bjsv.Kjalar og Bjsv.Brákar varð í fyrsta sæti, sameinað lið Bjsv.Oks, Bjsv.Heiðars og Bjsv.Brákar í öðru og hreinræktað Brákarlið í því þriðja. Sem sagt Bjsv.Brák skipaði sér í öll vinningssætinJ. Eftir 85 mínútur af meistaralegum keilutöktum var mannskapurinn orðinn glorhungraður og skellti sér á veitingastaðinn Pítuna þar sem gúffað var í sig góðum mat. Borgþór Hjörvarsson formaður Björgunarsveitarinnar Ársæls tók á móti okkur í Gróubúð, aðalbækistöðvum Ársæls og Slysavarnardeildar kvenna í Reykjavík. Gróubúð er bækistöð  landflokks hjá Bjsv. Ársæli, leitarhóps, sjúkrahóps, undanfara, bílahóps, gæsluhóps, beltahóps, tæknihóps, nýliða- og nýbúahóps. Þar á eftir fór Borgþór með okkur í Sjóbúð sem er bækistöð fyrir Ásgrímshóp, áhöfn björgunarskips Reykjavíkur sem heitir Ásgrímur S. Björnsson. Að lokum lá leið okkar í Gaujabúð þar sem Borgþór sýndi okkur aðalbækistöðvar bátahóps, kafarahóps, rústahóps, ungliðadeildar og Slysavarnardeildarinnar Vörðunnar.

 

Borgþór formaður með hópinn í Sjóbúð
Það var mjög gaman að skoða aðstöðuna og kynnast því hvernig Bjsv. Ársæll starfar og þökkum við fyrir það, einnig var ánægjulegt að sjá hversu mikið og gott starf er unnið þar

 

Smellið á myndir til að sjá þær stærri.

Til baka