Áttun á vef: Skip Navigation LinksBrák > FLOKKAR
S
M
Þ
M
F
F
L
27
28
29
30
1
2
3

4
5
6
7
8
9
10

11
12
13
14
15
16
17

18
19
20
21
22
23
24

25
26
27
28
29
30
31

1
2
3
4
5
6
7

Fyrri mánuður
júlí 2010
Næsti mánuður

Framundan

Heilræði

Skyndihjálp

Hjartaáfall


 
Hjartaáfall er afleiðing þess að blóðstreymi til einhvers hluta hjartans minnkar skyndilega eða stöðvast. Skjót greining og rétt viðbrögð er forsenda þess að einstaklingur haldi lífi og nái viðunandi bata.  

 

Einkenni 

  • Óþægilegur þrýstingur, tak eða sársauki fyrir miðju brjóstinu, sem varir lengur en fáeinar mínútur eða kemur og fer.
  • Verkur sem leiðir út í herðar, háls, kjálka, handleggi eða bak. 
  • Óþægindi fyrir brjósti, sem fylgja svimi, yfirlið, ógleði, sviti og mæði.
  • Verkur af völdum hjartaáfalls getur komið fram jafnt í hvíld sem eftir hreyfingu. Hann varir lengur en 10 mínútur og hverfur ekki fyrir tilverknað lyfja.

 

Skyndihjálp

  • Hringdu í Neyðarlínuna (1-1-2).
  • Fylgstu náið með ástandi einstaklingsins.
  • Hagræða honum í þægilega stöðu.
  • Aðstoðaðu hann við töku hjartalyfs ef hann á það.
  • Byrjaðu endurlífgun ef viðkomandi missir meðvitund og hættir að anda.

 

Hjartakveisa
Kransæðaþrenglsum getur fylgt brjóstverkur(hjartaöng) rétt eins og hjartaáfalli. Hjartakveisa getur orðið vart eftir líkamlega áreynslu, í kulda, við tilfinningalegt álag eða eftir máltíð. Verkurinn varir sjaldnast lengur en 10 mínútur og hverfur við hvíld eða lyfjatöku. 

 

 

Í öllu björgunarstarfi er mikilvægt að kunna vel til verka og vera fljótur að átta sig á aðstæðum og vita hvernig bregðast á við hverju sinni.  Til að þessu takmarki verði sem best komið til skila hafa bílaflokkur, bátaflokkur og fjallaflokkur, það hlutverk að sérhæfa sig á sínu sviði og miðla  reynslu og þekkingu áfram til annarra sveitarmeðlima í samvinnu við sitjandi stjórn hverju sinni. 

Reglulegar standa þessir flokkar fyrir námskeiðum og æfingum sem ætlast er til að sem flestir mæti á.  Þessir viðburðir eru vanalega vel kynntir á félagsfundum og síðan boðaðir í gegn um boðunarkerfið.