Borgarnesi 5. nóvember 2008
Aðalfundur Brákar
Fundargerð
- Formaður setur fund.
- Halla Kjartansdóttir skipuð sem fundarstjóri. Engar athugasemdir gerðar við það.
- Þorgerður Bjarnadóttir skipuð sem fundarritari. Engar athugasemdir gerðar við það.
- Þorgerður las upp skýrslu stjórnar.
- Skýrslan samþykkt með smávægjilegum breytingum.
- Guðrún gjaldkeri gerir grein fyrir ársreikningi Brákar. Spurningar bornar upp og Guðrún svara að bestu getu.
- Ársreikningur samþykktur einróma af fundargestum.
- Kosið í stjórn.
Erlendur Breiðfjörð Magnússon kjörin formaður Brákar en hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér næsta ár eða á næsta aðalfundi þann 1. apríl 2009.
- Atkvæði greidd og talin. Þorgerður, Pétur, Ágeir og Guðrún kjörin nær einróma í stjórn, eitt atkvæði ógilt. Guðrún hefur líka ákveðið að gefa ekki kost á sér næsta ár eða á næsta aðalfundi þann 1. apríl 2009. Alls buðu sig fram tveir, en það er Kristján Jóhannes sem ekki náði kjöri.
- Ólöf Kristín Jónsdóttir hættir í stjórn og er þakkað fyrir gott starf.
- Opnað fyrir önnur mál.
- Erlendur las upp bréf frá Sigurði Þorsteinssyni þar sem hann óskar eftir því að vera dregin úr bílaflokki og þar með vill hann leyfa yngri mönnunum að spreita sig.
- Guðmundur Finnur þakkar Sigurði góð störf í bílaflokki og lýsti því yfir hve ánægður hann er með mætinguna á fundinn.
- Allir voru sammála um að Sigurður yrði gerður umsjónamaður hússins og hann sæi þá um að fá fólk til að þrífa og þess háttar þegar þarf.
- Halla fjallaði um nýliðakvöld sem verið er að planleggja og umsjónamenn unglingadeildar Brákar kynntu að þeir ætluðu sér að virkja eldri meðlimi sveitarinnar í að kenna unglingunum. Engar athugasemdir gerðar við það.
- Vetrardagskrá kynnt og samþykkt.
- Umræður opnaðar um ýmis minniháttar málefni.
- Nýliðar og nýtt fólk í sveitinni kynnir sig og er boðið velkomið með viðeigandi vandræðalegu klappi.
- Fundi slitið.
Boðið var upp á kaffi og kökur í lok fundar og var Sæmundi Sigmundssyni nágranna okkar boðið í kaffi ásamt vinkonu sinni, Röggu.
Þorgerður Erla Bjarnadóttir, fundarritari.
Til baka