Kaffiuppáhelling fyrir G.I.W
Uppskriftin er miðuð við eins lítra kaffibrúsa.
· Fyllið ketil af vatni og látið sjóða.
· Notið stærstu gerð af trekt og stærstu gerð af pokum.
· Fyllið pokann af Gevalia kaffi.
· Þegar vatnið sýður má byrja að hella vatninu á kaffið en það getur tekið allt að 20 mínútum að fylla kaffibrúsann og því gott að skerpa öðru hvoru undir katlinum.
· Þegar brúsinn er fullur er upplagt að færa G.I.W eina könnu í rúmmið og má þá gera ráð fyrir að viðkomandi taki gleði sína og hætti að agnúast út í ferðafélaga sem fara á fætur á eðlilegum tíma.
Aðrir eru varaðir við að drekka kaffið nema þynna það verulega, mæli með 60% þynningu.