Fjallapönnukökur
(ath tvöföld uppskrift)
2 bollar Hveiti
4 st. Egg
4 dl. Mjólk
1 tsk. Lyftiduft
1 msk. Sykur
smá Vanilludropar
40-50 gr smjör (hægt að nota isio olíu þá aðeins minna 1 á móti 0,8)
Öllu þurrefninu blandað saman síðan eggjum bætt útí síðan smávegis af mjólk og hrært saman þá er mjólkinni bætt meira útí þar til deigið er orðið passlega þunnt bæta svo dropunum og bræddu smjöri/olíu útí
Síðan bakað á þartilgerðri pönnukökupönnu í þunnar kökur.
þegar þær eru tilbúnar þá er best að setja útá þær Bláberjasultu, rjóma og súkkulaðirúsínur.
Einnig má skipta rjómanum út fyrir kókosbollur :)