TETRA, VHF (very high frequency) (UHF)
Kallmerki:
Kallmerki eru notuð til að aðgreina einstaklinga, verkþætti og vinnuhópa hvern frá öðrum. Hver björgunarsveit hefur sitt eigið kallmerki. Kallmerki Björgunarsveitarinnar Brákar er BRÁK.
Bílarnir hafa kallmerkin:
- Brák 1 (Fordinn),
- Brák 2 (hvíti Land Cruiser)
- Brák 3 (blái Land Cruiser)
Hver einstök talstöð hefur svo sitt eigið kallmerki sem kennd er við viðkomandi björgunarmann hverju sinni. T.d. er kallmerki talstöðvar sem Ásgeir notast við: BRÁK-Ásgeir. Til að kalla í stjórnstöð skal nota kallmerkið BRÁK stjórnstöð. Nema annað sé sérstaklega tekið fram og er það þá kynnt sérstaklega í byrjun aðgerðar.
Talstöðvarsamskipti:
Þegar talað er í talstöð er mikilvægt að halda hljóðnemanum nokkra sentimetra frá munninum og ekki byrja að tala fyrr en 2-3 sekúndum eftir að ýtt er á senditakkann. Ekki reyna að grípa fram í fyrir aðila sem byrjaður er að tala, það eina sem gerist við það er það að þú tapar af skilaboðunum frá viðkomandi. Ef maður er að kalla í tíðni sem margir nota er algjörlega nauðsynlegt að nota kallmerkin.
Dæmi um samskipti í gegn um talstöð:
BRÁK-1!, BRÁK-Stjórnstöð kallar!
BRÁK-1! svarar Brák-Stjórnstöð!
BRÁK-1! Það sást síðast til mannsins við leitarkofann, hann var með veiðistöng og var að gangi niður að vatninu.
BRÁK-stjórnstöð! Við könnum málið.
BRÁK-1! skilaboð móttekin.