Þann 11. apríl næstkomandi verður aðalafundur Björgunarsveitarinnar Brákar haldinn í Pétursborg, en fundurinn verður kynntur betur síðar.
Nú liggur fyrir að a.m.k. 3-4 stjórnarmeðlimir eru á leið úr stjórn og því er óskað eftir framboðum, m.a. til formennsku. Á aðalfundinum verður kosið um formann og svo um aðra stjórnarmeðlimi. Skipta svo kjörnir aðilar með sér verkum.
Allir áhugasamir eru hvattir til að gefa kost á sér, enda er þátttaka í stjórnarstörfum kjörið tækifæri til að hafa áhrif á framtíðarstörf og stefnur sveitarinnar. Reynsla af stjórnarstörfum, aldur og fyrri störf er ekki aðalmálið í þessu, heldur áhugi til að vinna í þágu sveitarinnar að góðum málum.
Áhugasömum er bent á að hafa samband við einhvern stjórnarmeðlima til að tilkynna framboð.
Í stjórn eru:
Pétur Guðmundsson, formaður - s. 894-8830
Jóhannes B. Jónsson varaformaður - s. 869-5383
Guðrún Kristjánsdóttir, gjaldkeri -s. 892-4900
Erlendur Breiðfjörð, ritari - s. 866-6520
Fannar Þór, meðstjórnandi - s. 616-1126
Þorgerður Erla, varamaður - s. 691-1873
F.h. stjórnar,
Jóhannes B.
Til baka